Nokia Bluetooth Headset BH 609 - Settu höfuðtólið yfir eyrað

background image

Settu höfuðtólið yfir eyrað

Höfuðtólinu er komið fyrir á eyranu
með því að ýta hlustinni varlega að
eyranu. Beindu höfuðtólinu í átt að

munninum (11). Hægt er að snúa
eyrnapúðanum til að höfuðtólið
haldist fast á eyranu (14). Ef höfuðtólið
er t.d. haft á hægra eyranu þarftu
kannski að snúa eyrnapúðanum til
hægri til að hann fari sem best. Ef þú
ert með eyrnalokk þarftu að gæta þess
að hann festist ekki í eyrnapúðanum.

Ef þú vilt nota höfuðtólið með
eyrnalykkjunni kemurðu lykkjunni fyrir
(12). Til að losa lykkjuna kippirðu
henni varlega úr höfuðtólinu.

background image

ÍSLENSKA

Til að koma höfuðtólinu fyrir á eyranu
þegar eyrnalykkjan er notuð skaltu ýta
á lykkjuna með fingrinum (9) og renna
henni aftur fyrir eyrað (10). Ýttu svo
hlustinni varlega að eyranu. Beindu
höfuðtólinu í átt að munninum (11).
Stilltu lengd lykkjunnar með því að
draga hana fram eða til baka.