Nokia Bluetooth Headset BH 609 - Tengt við tvö tæki

background image

Tengt við tvö tæki

Hægt er að tengja höfuðtólið við tvö
tæki samtímis.

Að sjálfgefnu er aðeins hægt að
tengja höfuðtólið við einn farsíma
í senn. Til að geta tengt höfuðtólið við
tvö tæki þarf að slökkva á því og halda
valtakkanum inni og renna og halda
hljóðstyrkstakkanum uppi í u.þ.b.
5 sekúndur. Græna stöðuljósið blikkar
einu sinni.

Til að tengja höfuðtólið við eitt tæki
þarf að slökkva á höfuðtólinu og halda
valtakkanum inni og renna og halda
hljóðstyrkstakkanum niðri í u.þ.b.
5 sekúndur. Gula stöðuljósið blikkar
einu sinni.